Veiði

Sjóbirtingsveiðin fer vel af stað

Vötn og Veiði skrifar
Tveir fallegir sjóbirtingar úr Geirlandsá.  Veiðimennirnir eru Fanney Dórótea og Arnar Óskarsson
Tveir fallegir sjóbirtingar úr Geirlandsá. Veiðimennirnir eru Fanney Dórótea og Arnar Óskarsson Mynd af www.svfk.is
Sjóbirtingsveiðin er aðeins að drattast af stað og sunnanáttin með rigningunni undir lok síðustu viku og inn á helgina hleyptu vissulega smá lífi í gang mála. Leyfarnar af Írenu í fyrstu vikunni gerðu það líka að einhverju leyti.

Hin seinni ár hefur þetta yfirleitt verið að detta í gang einmitt um þessar mundir. Jú, það eru brögð að því á hverju ári að menn verði óþolinmóðir út í birtinginn ef hann er ekki byrjaður að ganga í lok ágúst. Yfirleitt eru komnir nokkrir fiskar í árnar á þeim tíma, en alvöru göngur byrja oftast ekki fyrr en seinna. Þetta endurspeglast núna.  Meira af sjóbirtingsslóðum hér á linknum fyrir neðan.

https://www.votnogveidi.is/frettir/eru-thau-ad-faann/nr/4033

Birt með góðfúlegu leyfi Vötn og Veiði






×