Fótbolti

Breno grunaður um hafa kveikt í húsinu sínu

Húsið hans Breno er illa farið.
Húsið hans Breno er illa farið.
Brasilíski varnarmaðurinn Breno hjá FC Bayern var talinn heppinn að sleppa lifandi út úr brennandi húsi sínu þegar kviknaði í því í vikunni. Nú bendir hins vegar ýmislegt til þess að Breno hafi sjálfur kveikt í húsi sínu.

„Miðað við þær upplýsingar sem við höfum teljum við að bruninn hafi ekki verið slys," er haft eftir saksóknaranum í málinu.

Breno var færður á sjúkrahúsið með snert af reykeitrun en varð annars ekki meint af. Eiginkona Breno og börn hans voru ekki heima þegar bruninn átti sér stað. Tjónið er metið á eina milljón dollara.

Breno kom til Bayern árið 2008 en hefur átt erfitt með að vinna sér sæti í liðið Bæjara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×