Fótbolti

Markvörður Mönchengladbach missti tvær tennur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ter Stegen.
Ter Stegen.
Neyðarlegt slys átti sér stað á æfingasvæði Borussia Mönchengladbach þegar hinn ungi markvörður liðsins, Marc-Andre ter Stegen, lenti í samstuði við markvarðaþjálfarann, Uwe Kamps.

Báðir fóru upp í sama boltann með þeim afleiðingum að Kamps rotaðist og Ter Stegen missti tvær tennur.

"Þetta leit mjög illa út. Ég vona að Marc verði klár í slaginn um helgina," sagði Lucien Favre, þjálfari liðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×