Fótbolti

Bayern München endurheimti toppsætið eftir sigur á Schalke

Stefán Árni Pálsson skrifar
Thomas Müller fagnar hér marki sínu í dag.
Thomas Müller fagnar hér marki sínu í dag. Mynd. / Getty Images
Bayern München vann nokkuð öruggan sigur gegn Schalke 2-0 í þýsku úrvalsdeildinni í dag, en leikurinn fór fram á Veltins-Arena, heimavelli Schalke.

Nils Petersen  kom  gestunum yfir eftir tuttugu mínútna leik með fínu marki. Það var síðan Thomas Müller sem tryggði sigur Bayern München þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka.

Bayern München er í efsta sæti deildarinnar með 15 stig eftir sex umferðir, en Schalke er í því níunda með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×