Leiknismenn enn á lífi í 1. deildinni en HK er fallið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. september 2011 20:40 Ólafur Hrannar Kristjánsson Mynd/Stefán
Leiknir vann 3-0 sigur á Fjölni í 1. deild karla í fótbolta í kvöld og eiga Efri-Breiðhyltingar því ennþá möguleika á að bjarga sér frá falli. Sömu sögu er ekki hægt að segja af HK-liðinu sem tapaði 0-2 fyrir Haukum og er fallið niður í 2. deild. ÍR-ingar nánast tryggðu sér endanlega sæti í deildinni á næsta sumri með 3-1 sigri á Þrótti. Björgvin Stefánsson og Hilmar Trausti Arnarsson tryggðu Haukum 2-0 sigur á HK í Kópavoginum en með því felldu þeir HK-liðið niður í 2. deild. Haukar ætla ekki að gefa neitt eftir í baráttunni við Selfoss um sæti í Pepsi-deildinni. Haukar eru nú þremur stigum á eftir Selfyssingum en Selfossliðið á einn leik inni á Hauka. Ólafur Hrannar Kristjánsson skoraði öll mörk Leiknis í 3-0 sigri á Fjölni í Breiðholtinu en Leiknisliðið er nú þremur stigum á eftir Gróttu sem situr í síðasta örugga sætinu. ÍR-ingar nánast gulltryggðu sætið sitt með 3-1 útisigri á Þrótti í Laugardalnum. Sveinbjörn Jónasson kom Þrótti yfir en tvö mörk frá Árna Frey Guðnasyni og eitt frá Jón Gísla Ström sáu til þess að ÍR-ingar eru í ágætum málum í fallbaráttunni þegar tvær umferðir eru eftir. Upplýsingar um markaskorara er að hluta til fengnar af vefsíðunni fótbolti.netÚrslit og markaskorarar í 1. deild karla í kvöld:HK - Haukar 0-2 0-1 Björgvin Stefánsson (11.), 0-2 Hilmar Trausti Arnarsson (82.)Þróttur R. - ÍR 1-3 1-0 Sveinbjörn Jónasson (34.), 1-1 Árni Freyr Guðnason (45.), 1-2 Jón Gísli Ström (55.), 1-3 Árni Freyr Guðnason (65.)Leiknir R. - Fjölnir 3-0 1-0 Ólafur Hrannar Kristjánsson (22.), 2-0 Ólafur Hrannar Kristjánsson (35.), 3-0 Ólafur Hrannar Kristjánsson (90.+3)
Íslenski boltinn Mest lesið Leik lokið: Stjarnan - Fram 25-31 | Fram bikarmeistari Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 20-25 | Haukar bikarmeistarar í fyrsta sinn í átján ár Handbolti „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Fótbolti „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Enski boltinn Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni Handbolti Sló heimsmetið í ellefta sinn sama dag og hann gaf út sitt fyrsta lag Sport Messi var óánægður hjá PSG Fótbolti Fleiri fréttir Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Sjá meira