Veigar Páll: Eitt rauðvínsglas og tveir bjórar skipta engu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. september 2011 21:50 Veigar Páll Gunnarsson á æfingu með íslenska landsliðinu í fyrra. Mynd/Valli
Veigar Páll Gunnarsson hefur tjáð sig um atburði helgarinnar er hann fór úr íslenska landsliðshópnum fyrir leik liðsins gegn Kýpur á þriðjudagskvöldið. Veigar Páll hefur ítrekað hafnað beiðni Vísis um viðtal en tjáði sig um málið við fréttamann norsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 í dag. Veigar mætti í dag á æfingu félags síns, Vålerenga, í Osló. Í fréttinni, sem sjá má og lesa hér, er einnig rætt við Ólaf Jóhannesson sem tjáði sig fyrst um málið í kvöldfréttum Rúv í gær. Hann hafði áður neitað að tjá sig um atvikið, bæði fyrir og eftir leikinn gegn Kýpur. Ólafur segir að það hafi verið tvær reglur sem leikmenn þurftu að fara eftir á laugardagskvöldið, þegar þeir fengu leyfi til að hitta vini og vandamenn. Annars vegar að skila sér aftur á hótel landsliðsins fyrir miðnætti og hins vegar að neyta ekki áfengis. Ólafur sagði að Veigar hefði aðeins virt fyrri regluna en bætti við í samtali við TV2 í dag: „Ég sá hann á hótelbarnum þar sem hann var að drekka," sagði Ólafur. Veigar svaraði því. „Nei, ég var að drekka kaffi," sagði hann í gamansömum tón og bætti við: „Hann á ekki að koma upp að mér og spyrja hvað í ósköpunum ég sé að gera. „Hvað meinarðu," sagði ég og hann svaraði: „Ég sé að þú ert búinn að drekka áfengi." „Ég er fullorðinn maður. Eitt rauðvínsglas og tveir bjórar skipta engu fyrir leik á móti Kýpur. Ég fékk nóg og dró mig úr landsliðshópnum." En Ólafur segir að hann hafi ákveðið að reka Veigar úr hópnum. „Ég sagði að hann yrði að fara," sagði Ólafur og ljóst að þar standa orð gegn orði.
Íslenski boltinn Mest lesið Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Enski boltinn Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Handbolti Píla festist í fæti keppanda Sport Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Enski boltinn Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Fótbolti Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Fótbolti Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Fótbolti Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Golf Kenndi hárvörum um í umdeildu jafntefli Sport Welbeck skaut Brighton áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld Sjá meira