Fótbolti

Malmö styrkir stöðu sína

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sara Björk í leik með íslenska landsliðinu.
Sara Björk í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Valli.
Malmö vann í dag góðan 2-0 sigur á Dalsjöfors á útivelli og styrkti þar með stöðu sína á toppi deildarinnar.

Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir markvörður voru í byrjunarliði Malmö í dag. Þóra lék allan leikinn en Sara Björk var tekin af velli þegar stundarfjórðungur var til leiksloka.

Malmö á titil að verja í Svíþjóð og er nú með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar. Umeå er í öðru sæti og á þar að auki leik til góða gegn Íslendingaliðinu Kristianstad á morgun.

Á morgun fara fram fjórir leikir í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×