KR-ingar í appelsínugulum búningum á laugardaginn - Valgeir dæmir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. ágúst 2011 16:45 KR-ingar léku líka í appelsínugulu í úrslitaleiknum í fyrra. Mynd/Daníel
Blaðamannafundur fór fram í höfuðstöðvum KSÍ í dag þar sem forráðamenn Þórs og KR gáfu kost á viðtölum fyrir bikarúrslitaleikinn á laugardaginn. Á fundinum kom fram að Þórsarar spila í sínum hefðbundnu hvítu og rauðu búningum en KR-ingar verða í appelsínugulum varabúningum sínum. Valgeir Valgeirsson, sem dæmir fyrir ÍA, hefur fengið það hlutverk að dæma leikinn. Gunnar Sverrir Gunnarsson og Frosti Viðar Gunnarsson verða aðstoðardómarar, Þorvaldur Árnason fjórði dómari og Kári Gunnlaugsson sinnir eftirlitsstörfum. Sigurliðið fær eina milljón krónur í sinn hlut en tapliðið 500 þúsund krónur. Þórsarar munu sitja í norðurenda stúkunnar á Laugardalsvelli en KR-ingar í suðurendanum. Stuðningsmenn Þórsara koma saman á öldurhúsinu Ölveri í Glæsibæ fyrir leikinn. Stuðningsmenn KR-inga hittast á Rauða Ljóninu á Eiðistorgi á leikdag áður en haldið verður á Laugardalsvöll. Á heimasíðu Mjölnismanna, stuðningsmanna Þórs, fer fram skráning í rútuferðir í höfuðborgina. Hægt er að skrá sig í ferðina hér. Stuðningsmenn KR standa fyrir hópefli í kvöld klukkan 20 á Rauða Ljóninu þar sem fer fram Pub Quiz. Þeir vonast eftir því að Guðmundur Reynir Gunnarsson taki lagið. Guðmundur Reynir missir sem kunnugt er af bikarúrslitaleiknum á laugardaginn vegna leikbanns. Nánar hér. Leikurinn hefst á klukkan 16 á laugardaginn og verður í beinni útsendingu á Stöð2 Sport.
Íslenski boltinn Mest lesið Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Enski boltinn Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Handbolti Píla festist í fæti keppanda Sport Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Enski boltinn Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Fótbolti Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Fótbolti Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Fótbolti Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Golf Kenndi hárvörum um í umdeildu jafntefli Sport Welbeck skaut Brighton áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld Sjá meira