Fótbolti

Stórsigur hjá Haugesund í fyrsta leik Andrésar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andrés Már Jóhannesson.
Andrés Már Jóhannesson. Mynd/Anton
Andrés Már Jóhannesson var í byrjunarliði Haugesund sem vann 4-0 sigur á Sogndal í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Andrés Már var að leika sinn fyrsta leik með Haugesund eftir að félagið keypti hann frá Fylki á dögunum.

Andrés lék í stöðu hægri bakvarðar í leiknum en Haugesund var komið í 3-0 eftir aðeins 40 mínútur. Alexander Søderlund, gamli FH-ingurinn kom síðan inn á sem varamaður og innsiglaði sigurinn.

Stefán Logi Magnússon og Björn Bergmann Sigurðarson léku báðir allan leikinn þegar Lilleström vann 3-2 sigur á Tromsö þrátt fyrir að vera 0-2 undir þegar 14 mínútur voru eftir að leiknum. Björn Bergmann lagði upp annað mark Lilleström í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×