Guðjón: Líklega eins erfitt og það getur orðið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. júlí 2011 13:50
Vestfirðingar taka á móti KR-ingum á heimavelli 28. júlí. Guðjón sá sjálfur um að draga mótherjana upp úr hattinum. Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur var nokkuð sáttur við dráttinn og lýsti honum að nokkru leyti sem draumadrætti. Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur var nokkuð sáttur við dráttinn í bikarnum í dag en hans menn taka á móti KR. Guðjón sá sjálfur um að draga mótherjana upp úr hattinum og sagði að nokkru leyti um draumadrátt að ræða. „Að mörgu leyti var þetta það. Það er margt skemmtilegt við hann. Ég á tvo bikartitla við KR og svo er sonur minn Bjarni fyrirliði KR,“ sagði Guðjón sem er greinilega spenntur fyrir leiknum. Allt gengur KR-ingum í hag þessa dagana og flestir á þeirri skoðun að þar fer sterkasta félagslið landsins um þessar mundir. „Verkefnið er erfitt. KR er líklegast með besta liðið í deildinni í dag. Það gerir verkefnið ennþá skemmtilegra og meiri tilhlökkun að takast á við það. En þetta er líklega eins erfitt og það getur orðið á þessu ári,“ sagði Guðjón. Guðjón hefur marga fjöruna sopið og segir sitt lið eiga möguleika að komast í úrslitaleikinn. „Það er alltaf möguleiki. Það er fegurðin við fótboltann. Það er alltaf möguleiki. Maður hefur séð skrýtin úrslit.“
Íslenski boltinn Mest lesið Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Enski boltinn Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Handbolti Píla festist í fæti keppanda Sport Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Enski boltinn Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Fótbolti Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Fótbolti Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Fótbolti Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Golf Kenndi hárvörum um í umdeildu jafntefli Sport Welbeck skaut Brighton áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld Sjá meira