Fótbolti

Örebro vann dramatískan sigur í Svíþjóð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir.
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir. Mynd/Valli
Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir voru báðar í byrjunarliði Örebro sem vann góðan 2-1 sigur á Linköping í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Linköping komst yfir snemma leiks en Örebro tryggði sér sigurinn með tveimur mörkum á síðustu sjö mínútum leiksins.

Tyresö vann svo 3-0 sigur á Djurgården. Guðbjörg Gunnarsdóttir og Katrín Jónsdóttir léku allan leikinn með Djurgården en Dóra María Lárusdóttir var tekin af velli í lok leiksins.

Örebro er í fimmta sæti deildarinnar með sextán stig en Djurgården er í því áttunda með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×