Fótbolti

Neuer skrifaði undir 5 ára samning

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ný treyja Neuer sem vígð var í dag
Ný treyja Neuer sem vígð var í dag Mynd/Getty Images
Manuel Neuer skrifaði undir fimm ára samning við Bayern Munchen að lokinni læknisskoðun í dag. Neuer sem kemur frá Schalke þykir einn allra fremsti markvörður heims. Töluvert er síðan Bæjarar náðu samkomulagi við Schalke um kaupin með þeim fyrirvara að læknisskoðun gengi í gegn.

Við erum mjög ánægðri með að hafa fengið einn besta markvörð heims til liðs við okkur. Við eru einnig mjög ánægðir með lengd samningsins, sagði Christian Nerlinger yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern.

Óánægju hefur gætt meðal fámenns hluta stuðningsmanna Bayern enda Schalke erkifjendur þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×