Fótbolti

Schalke vann þýsku bikarkeppnina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Schalke fagna í dag.
Leikmenn Schalke fagna í dag.
Schalke varð í dag þýskur bikarmeistari í knattspyrnu er liðið vann stórsigur, 5-0, á Duisburg.

Hollendingurinn Klaas-Jan Huntelaar skoraði tvö mörk í leiknum en hinum mörkin skoruðu Julian Draxler, Benedikt Höwedes og Jose Durado.

Staðan í hálfleik var 3-0 fyrir Schalke og sigurinn aldrei í neinni hættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×