Körfubolti

Chris Bosh búinn að kæra gömlu kærustuna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Chris Bosh með þeim LeBron James og 
Dwyane Wade á skotæfingu.
Chris Bosh með þeim LeBron James og Dwyane Wade á skotæfingu. Mynd/AP
Chris Bosh, einn af stjörnuleikmönnum Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta, stendur ekki aðeins í ströngu þessa dagana inn á vellinum í úrslitakeppninni því hann á einnig í deilum við gömlu kærustu sína og barnsmóður.

Allison Mathis hefur verið ráðin til þess að taka þátt í raunveruleikaþættinum “Basketball Wives” undir þeim formerkjum að hún sé fyrrum kærasta Chris Bosh en þau eiga einnig barn saman.

Bosh er að reyna að koma í veg fyrir að Mathis fari í þáttinn og upplýsi um leið um ýmis persónuleg mál milli þeirra og úr þeirra sambandi. Hann ákvað því að kæra gömlu kærustuna til þess að fá lögbann á þátttöku hennar í sjónvarpsþættinum.

Allison Mathis dreymir um frægð og frama og þáttaka hennar í þessum þætti er væntanlega síðasta tækifærið til þess að öðlast hana út á samband sitt og Bosh.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×