Fótbolti

Gylfi tryggði Hoffenheim útisigur á móti Nürnberg

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson sést hér í leiknum í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson sést hér í leiknum í dag. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins þremur mínútum fyrir leikslok. Gylfi lagði einnig upp fyrra mark Hoffenheim sem lenti undir í leiknum en vann síðan góðan 2-1 sigur.

Philipp Wollscheid kom Nürnberg í 1-0 á 16. mínútu en Gylfi lagði upp jöfnunarmarkið fyrir Roberto Firmino á 40. mínútu. Brasilíumaðurinn skallaði þá inn aukaspyrnu Gylfa frá hægri.

Gylfi skoraði síðan sigurmarkið sitt á 87.mínútu með laglegu hægri fótar skoti eftir að hafa verið fljótur að átta sig.

Gylfi hefur þar með skorað níu deildarmörk á tímabilinu en þetta var einnig þriðja stoðsendingin hans. Sigurinn kom Hoffenheim upp í níunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×