Tíska og hönnun

Fatahönnuðir framtíðar í Central Saint Martins

Central Saint Martins skólinn í London er einn besti og virtasti fatahönnunarskóli í heimi. Atvinnu- og áhugamenn um allan heim fylgjast spenntir með nýjum hönnuðum sem útskrifast úr skólanum á hverju ári því oftar en ekki leynast þar framtíðarstjörnurnar í tískubransanum.

Meðal heimsfrægra fatahönnuða sem útskrifast hafa úr skólanum er nýstirnið Sarah Burton sem skyndilega er orðin einn þekktasti fatahönnuðurinn í dag eftir að hún hannað brúðarkjól Kate Middleton. Sarah er yfirhönnuður hjá tískuhúsi Alexander McQueen en hann vakti gríðarlega athygli fyrir framúrstefnulega hönnun sína þegar hann útskrifaðist úr Central Saint Martins fyrir tveimur áratugum.

Það er því ljóst að einhver af þeim ungu nýútskrifuðu fatahönnuðum úr Central Saint Martins sem sýndu útskriftarafurðir sýnar á dögunum, sem skoða má í myndasafninu, eiga eftir að skjótast upp á stjörnuhiminninn á næstu árum.

Haustlína Alexander McQueen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.