Körfubolti

Sundsvall jafnaði metin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Sundsvall Dragons jafnaði í dag metin í rimmunni gegn Norrköping Dolphins um sænska meistarartitilinn í körfubolta í 1-1. Sundsvall vann þá nauman sigur á útivelli, 94-93.

Sundsvall var með örugga forystu lengst af í leiknum en var svo stálheppið að sleppa með sigurinn undir lokin.

Sundsvall var með forystuna, 94-80, þegar þrjár mínútur voru til leiksloka en á næstu rúmum tveimur mínútum náði Norrköping að skora þrettán stig í röð og minnka muninn í eitt stig.

Norrköping fékk svo tækifæri til að skora sigurkörfuna þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka en Andrew Mitchell misnotaði þá sniðskot. Jakob Siguarðarson náði frákastinu og þar við sat.

Jakob skoraði sextán stig fyrir Sundsvall, tók þrjú fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Hlynur Bæringsson skoraði fimmtán stig, tók ellefu fráköst og gaf tvær stoðsendingar.

Næsti leikur liðanna fer fram á þriðjudagskvöldið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×