Körfubolti

Kobe er tognaður á ökkla

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kobe ætlar að spila þó svo hann sé meiddur.
Kobe ætlar að spila þó svo hann sé meiddur.
Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers, er tognaður á vinstri ökkla sem er mikið áhyggjuefni fyrir meistarana. Engu að síður stefnir Kobe að því að spila næstu leiki með liðinu.

Lakers má alls ekki við því að missa Kobe út enda er liðið í erfiðum bardaga gegn New Orleans þar sem staðan er 2-2.

Kobe er í stífri meðferð allan daginn hjá læknum og sjúkraþjálfurum Lakers. Hann neitaði að fara í myndatökur vegna meiðslanna. Bað um meðhöndlun og segist ætla að spila.

"Við erum að reyna að sannfæra hann um að það sé skynsamlegt að skoða eðli meiðslanna almennilega. Hann er ekki alveg til í það," sagði Phil Jackson, þjálfari Lakers.

"Ég ætti að geta spilað. Auðvitað hef ég áhyggjur af meiðslunum en ég hef margoft spilað meiddur áður. Þetta er ekkert nýtt fyrir mig," sagði Kobe.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×