Fótbolti

Sara Björk með þrennu fyrir Malmö

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sara fagnar hér marki með landsliðinu.
Sara fagnar hér marki með landsliðinu.
Landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir fór á kostum með Ldb Malmö í kvöld er liðið lagði Hammarby, 3-1. Sara Björk skoraði öll mörk Malmö í leiknum.

Þetta voru fyrstu mörk Söru Bjarkar fyrir Malmö en hún gekk í raðir liðsins fyrir tímabilið frá Breiðablik.

Þóra Helgadóttir stóð í marki Malmö sem fyrr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×