Körfubolti

NBA í nótt: Chicago skrefi nær heimavallarréttinum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Derrick Rose í leiknum í nótt.
Derrick Rose í leiknum í nótt. Mynd/AP
Chicago Bulls vann í nótt sigur á Detroit Pistons, 101-96, og færðist þar með skrefi nær titlinum í Austurdeildinni og heimavallarréttinum í úrslitakeppni hennar í NBA-deildinni í vor.

Derrick Rose skoraði 27 stig fyrir Chicago í leiknum, þar af þrettán í fyrsta leikhluta. Hann átti lykilstoðsendingu á lokamínútu leiksins þegar Chicago náði að tryggja sér sigurinn.

Chicago hafur nú unnið fjórtán af síðustu sextán leikjum sínum í deildinni og hefur ágæta forystu á Miami og Boston sem koma næst í Austurdeildinni. Liðið hefur alls unnið 55 leiki í vetur en tapað 20.

Detroit á ekki lengur möguleika á sæti í úrslitakeppninni og fara því snemma í sumarfrí þetta árið. Liðið barðist þó fyrir sínu í nótt og náði að minnka muninn í þrjú stig þegar skammt var til leiksloka.

Áhorfendur í Auburn Hill hafa lengst af í vetur verið duglegir að hvetja Derrick Rose áfram og krafist þess að hann verði valinn besti leikmaður deildarinnar. Í dag virðist fátt benda til annars.

Carlos Boozer átti einnig góðan leik fyrir Chicago en hann skoraði 22 stig, tók átta fráköst og gaf sjö stoðsendingar.

Hjá Detroit var Richard Hamilton stigahæstur með 30 stig, Tayshaun Prince var með sautján og Will Bynum tólf.

Miami vann Minnesota, 111-92. Dwyane Wade skoraði 32 stig og LeBron James var með 27 stig, tíu stoðsendingar og sex fráköst. Miami var hundir í hálfleik en kláraði leikinn með 25-1 spretti í upphafi þriðja leikhluta.

Atlanta vann Boston, 88-83. Al Horford tryggði Atlanta sigurinn þegar 7,9 sekúndur voru til leiksloka.

Indiana vann Milwaukee, 89-88, og tryggði sér þar með endanlega sæti í úrslitakeppninni. Hið sama má segja um Philadelphia sem vann New Jersey, 115-90.

Houston vann San Antonio, 119-114, í framlengdum leik. Kevin Martin skoraði 33 stig fyrir Houston en San Antonio - sem er enn með bestan árangur allra liða í deildinni - tapaði í nótt sínum sjötta leik í röð.

LA Lakers vann Utah, 96-85. Þetta var níundi sigur Lakers í röð en liðið nálgast nú San Antonio óðfluga á toppnum.

Úrslit annarra leikja:

Orlando - Charlotte 89-77

Washington - Cleveland 115-107

Now Orleans - Memphis 81-93

Phoenix - LA Clippers 111-98

Portland - Oklahoma City 98-91

Sacramento - Denver 90-99

Staðan í deildinni.

Þessi lið eru komin áfram í úrslitakeppnina:

Austurdeildin:

Chicago, Miami, Boston, Orlando, Atlanta og Philadelphia.

Vetsurdeildin:

San Antonio, LA Lakers, Dallas og Oklahoma City.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×