Körfubolti

Eiginkona Nash fæddi barn liðsfélaga hans

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Steve Nash.
Steve Nash.
Það vakti talsvert mikla athygli í desember síðastliðnum er Steve Nash sótti um skilnað frá konu sinni, Alejandro Amarilla, aðeins einum degi eftir að hún fæddi þeim son.

Nash flutti út frá henni nokkrum mánuðum áður þar sem hann hafði hana grunaða um að halda fram hjá sér.

Hann fékk þann grun staðfestan er barnið fæddist enda var það þeldökkt á hörund.

Nú er hermt að faðir barnsins sé Jason Richardson sem á þeim tíma lék með Nash hjá Phoenix Suns. Hann var sendur frá Phoenix til Orlando fljótlega eftir að barnið fæddist.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×