Tíska og hönnun

Spánverjar taka íslenskum töskum fagnandi

Töskurnar frá Mar designs.
Töskurnar frá Mar designs.
Fyrir um ári síðan stofnaði Elín Bjarnadóttir fyrirtækið Mar designs í spænska bænum Castalla.

Hún hannar og framleiðir handtöskur úr íslensku fiskiroði og hafa þær vakið nokkra athygli á svæðinu. Elín hefur selt þær í verslunum í Castalla og kynnt fyrir ferðamönnum á Alicante.

Elín með bæjarstjóra Castalla og ferðamálafulltrúa bæjarins.
Bæjarstjórinn í Castalla er einn þeirra sem tók þessu íslenska hönnunarfyrirtæki fagnandi og sýndi Elínu stuðning í verki.

Töskurnar frá Mar designs eru nú fáanlegar á Íslandi í verslununum Tékk Kristall og í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Mar designs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×