Meirihlutinn vill fella Icesave 6. apríl 2011 18:30
Icesave samningarnir verða felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardag. Tæplega 57% þjóðarinnar ætla að segja nei samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2. Algjör umsnúningur hefur orðið í afstöðu fólks til málsins á nokkrum vikum. Könnunin, sem var netkönnun, var gerð af MMR dagana 4.-6. apríl og náði til rúmlega 1500 einstaklinga. 942 svöruðu eða rúmlega 60 prósent. Spurt var: Ef kosið yrði um nýjustu Icesave lögin í dag, hvort myndir þú kjósa með eða á móti? Af þeim sem tóku afstöðu ætla 56,8% að segja nei en 43,2% að segja já. Miðað við þessa niðurstöðu verða Icesave samningarnir felldir í þjóðaratkvægðagreiðslunni á laugardag. Þetta er mikill viðsnúningur frá fyrri könnunum sem allar hafa bent til þess að Icesave verði samþykkt.11 af 16 þingmönnum Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði með Iceasave á Alþingi, þar á meðal Bjarni Benediktsson, formaður flokksins. Þessum þingmönnum hefur hins vegar ekki tekist að sannfæra kjósendur flokksins því aðeins fjórðungur kjósenda Sjálfstæðisflokks ætlar að styðja samninginn. Þetta er minni stuðningur en hjá kjósendum Framsóknarflokks en þingmenn flokksins sátu annað hvort hjá eða greiddu atkvæði gegn Icesave þegar Alþingi tók afstöðu til málsins. Kjósendur Samfylkingarinnar ætla flestir að greiða atkvæða með Icesave en kjósendur Vinstri grænna eru hins vegar klofnir í afstöðu sinni til málsins.
Icesave Mest lesið Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Innlent Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Innlent Lokað um Hellisheiði og Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu Innlent Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Innlent Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Innlent Fleiri fréttir Lokað um Hellisheiði og Þrengsli og vegir víða á óvissustigi „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Lyklaskipti og afmæli elsta Íslendingsins Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu „Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Það bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ „Ein allra besta jólagjöfin“ „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Skortur á sjúkragæslu á viðburðum hafi áhrif á neyðarþjónustu Eftirliti á viðburðum ábótavant og skynsemi í orkumálum Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi „Afskaplega róleg“ nótt hjá lögreglumönnum Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Sjá meira