Körfubolti

Sverrir: Vorum ekki tilbúin

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Sverrir Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur.
Sverrir Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur.
„Liðið var greinilega ekki tilbúið," sagði Sverrir Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur eftir 83-47 tap gegn Hamar í kvöld.

„Hamarsliðið spilaði vel en sem betur fer er staðan bara 2-1 sama hver staðan var hér í kvöld, til þess þurfum við að vinna í Njarðvík og það er eitthvað sem við ætlum að gera,"

„Það var sama hvað við gerðum, hvort sem ég breytti eða ekki þá gekk ekkert hjá okkur. Svo þegar við förum í gang erum við komin það langt fyrir aftan og Hamar komnar með neistann, að hitta vel. Þá kemur upp einbeitingarleysi, leikmenn ekki að vinna nægilega vel saman,"

„Margt af því sem við höfum verið að gera vel í fyrstu tveimur leikjunum sást ekki hér í kvöld," sagði Sverrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×