Fótbolti

Þóra og félagar urðu meistarar meistaranna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þóra Björg Helgadóttir.
Þóra Björg Helgadóttir. Mynd/Stefán
Þóra Björg Helgadóttir og félagar hennar í LDB Malmö urðu í dag meistarar meistaranna í Svíþjóð eftir 2-1 sigur á bikarmeisturum Örebro þar sem Edda Garðarsdóttir og María Björg Ágústsdóttir voru báðar í byrjunarliðinu.

Það var hollenska landsliðskonan Manon Melis sem tryggði Malmö sigurinn með marki í uppbótartíma en Sarah Storck hafði jafnað metin þrettán mínútum áður. Örebro komst í 1-0 í leiknum með marki Hanna Agren eftir 56 mínútna leik.

Þóra lék allan leikinn eins og Edda Garðarsdóttir en María Björk varð að fara að velli eftir aðeins átta mínútna leik. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir var ekki í liði Örebro í dag.

Þetta var árlegur leikur sænsku meistarana og sænsku bikarmeistarana en sænska úrvalsdeildin hefst síðan um næstu helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×