Körfubolti

NBA í nótt: Enn vann Chicago - Love bætti met

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kevin Love fagnar áfanganum í nótt.
Kevin Love fagnar áfanganum í nótt. Mynd/AP
Chicago Bulls vann í nótt sinn ellefta sigur í síðustu þrettán leikjum sínum er liðið lagði Charlotte Bobcats, 101-84, í NBA-deildinni í körfubolta. Þar með er liðið öruggt með sæti í úrslitakeppninni.

Bulls minnkaði einnig forystu Boston á toppnum en liðið tapaði nokkuð óvænt fyrir LA Clippers á heimavelli í nótt.

Boston er engu að síður öruggt með sæti í úrslitakeppninni og bandarískir fjölmiðlar fullyrða að það sama eigi við um Chicago. Samkvæmt heimasíðu NBA-deildarinnar er þó Boston eina liðið sem er öruggt áfram eins og staðan er í dag.

Slæmu fréttirnar fyrir Chicago eru þó þær að Carlos Boozer meiddist þegar um fimm mínútur voru eftir af leiknum. Í fyrstu sýn virtist hann ekki hafa meitt sig illa en forráðamenn liðsins geta þó ekki útilokað meiðsli á ökkla.

Derrick Rose og Kyle Korver skoruðu hvor 20 stig fyrir Chicago í leiknum en sá síðarnefndi skoraði tólf stig í fjórða leikhluta er liðið náði að sigla fram úr Charlotte og tryggja sér sigurinn.

Joakim Noah var einnig góður en hann skoraði tólf stig og tók þrettán fráköst.

Michael Jordon er eigandi Charlotte og var á vellinum í nótt. Hann gerði garðinn frægan með Chicago og hrósaði Rose mikið eftir leikinn. „Hann á skilið að verða valinn besti leikmaður tímabilsins (MVP). Það er enginn vafi á því að hann er að spila nógu vel til þess."

Minnesota vann Indiana, 101-75, en leikurinn reyndist sögulegur fyrir framherjann Kevin Love. Hann skoraði sextán stig og tók 21 frákast og náði þar með tvöfaldri tvennu í 52. leiknum í röð. Það er met í NBA-deildinni en hann tók þar með fram úr Moses Malone sem setti gamla metið árið 1979.

Úrslitin í nótt:


Charlotte - Chicago 84-101

New Jersey - Golden State 94-90

Philadelphia - Oklahoma City 105-110

Toronto - Utah 94-96

Boston - LA Clippers 103-108

Memphis - Knicks 108-110

Milwaukee - Cleveland 110-90

Minnesota - Indiana 101-75

New Orleans - Dallas 93-92

San Antonio - Detroit 111-104

Sacramento - Orlando 106

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×