Körfubolti

NBA í nótt: Allt undir hjá Miami sem vann Lakers

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Chris Bosh var öflugur í nótt.
Chris Bosh var öflugur í nótt. Mynd/AP
Miami Heat vann í nótt gríðarlega mikilvægan sigur á LA Lakers í NBA-deildinni í körfubolta, 94-88, og tryggði sér um leið öruggt sæti í úrslitakeppni deildarinnar.

Miami hafði tapað fimm leikjum í röð og var komið í mikil vandræði, sérstaklega þar sem liðið hafði unnið aðeins einn leik af níu gegn fimm sterkustu liðum deildarinnar.

Leikmenn Miami þurftu því að sanna sig - að þeir gætu unnið bestu liðin og ættu þar með erindi í úrslitakeppnina. Þessi eini áðurnefndi sigur kom reyndar gegn Lakers fyrr í vetur og hefur því Miami unnið báða leiki sína gegn ríkjandi meisturum deildarinnar.

Miami batt þar að auki enda á átta leikja sigurgöngu Lakers með sigrinum í nótt.

„Það var allt undir í þessum leik, í sannleika sagt," sagði Chris Bosh sem hefur einna helst verið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í vetur af leikmönnum liðsins. Hann sagði eftir síðasta leik, þegar að Miami tapaði fyrir Chicago, að hann vildi fá fleiri skot og hann fékk þau í nótt. Hann skoraði alls 24 stig í leiknum.

Dwyane Wade var einnig öflugur og skoraði 20 stig. LeBron James var með nítján stig og troðsla hans þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka kom Miami yfir í síðasta sinn í leiknum. Miami komst þá yfir, 90-88, en Lakers átti ekki eftir að ná að svara fyrir sig og Miami kláraði leikinn með því að skora síðustu sex stigin.

Varamenn Miami skiluðu aðeins átta stigum af sér í leiknum gegn Chicago en þau urðu alls 22 í kvöld.

Hjá Lakers var Kobe Bryant stigahæstur með 24 stig og Pau Gasol kom næstur með 20.

Þrjú efstu liðin í Austurdeildinni - Boston, Chicago og Miami - eru nú komin áfram í úrslitakeppnina og sömuleiðis San Antonio, toppliðið í Vesturdeildinni.

Dallas vann New York, 127-109. Dirk Nowitzky skoraði 23 stig, Shawn Marion var með 22 og Jason Terry 21 fyrir Dallas.

Denver vann Phoenix, 116-91. Nene skoraði 22 stig á 26 mínútum fyrir Denver sem hafði tapað fyrir Phoenix þrettán sinnum í röð fyrir leik liðanna í nótt.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×