Körfubolti

Dwayne Wade fékk forræði yfir tveimur sonum sínum

Dwayne Wade hefur staðið í forræðisdeilu undanfarin tvö ár.
Dwayne Wade hefur staðið í forræðisdeilu undanfarin tvö ár. AP
Dwayne Wade leikmaður NBA liðsins Miami Heat hefur staðið í ströngu utan vallar vegna forræðisdeilu við fyrrum sambýliskonu. Dómstóll í Chicago hefur bundið enda á það mál með því að úrskurða að Wade fái fullt forræði yfir sonum sínum – en málaferlin hafa staðið yfir í tvö ár.

Wade sagði við fréttamenn að niðurstaðan væri mikill léttir fyrir hann. „Líf mitt hefur breyst mikið og ég hélt áfram að berjast fyrir þessum rétti þrátt fyrir að útlitið væri ekki gott,“  sagði Wade sem lék einn sinn besta leik á tímabilinu gegn Memphis eftir að dómurinn var kveðinn upp. Þar skoraði hann 28 stig, gaf 9 stoðsendingar og varði 5 skot.

„Ég fékk bestu fréttir sem ég hef fengið rétt fyrir leikinn og ég naut þess að leika án þess að þurfa að hafa áhyggjur,“ sagði Wade.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×