KR og Valur spila til úrslita í Reykjavíkurmótinu í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2011 18:15 Frá leik Vals og KR síðasta sumar.
KR og Valur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í fótbolta í Egilhöllinni klukkan 19.15 í kvöld en þar reyna Valsmenn að koma í veg fyrir að KR-ingar verði Reykjavíkurmeistarar þriðja árið í röð. KR-ingar unnu Reykjavíkurmeistaratitilinn í 37. sinn fyrir ári síðan en þeir hafa unnið Fylki (3-1 2009) og Víking (3-2 2010) í úrslitaleiknum undanfarin tvö ár. Valsmenn hafa unnið Reykjavíkurmótið 19 sinnum en síðast urðu þeir Reykjavikurmeistar árið 2005. Valur tryggði sér þá titilinn með því að vinna KR í vítaspyrnukeppni í undanúrslitunum en FH-ingar komust í úrslitaleikinn sem gestalið. Bæði lið þurftu vítaspyrnukeppni til þess að komast í úrslitaleikinn, KR sló út Fram og Valur sló úr Fylki. Á heimasíðu KR-inga hefur hin töluglöggi Ólafur Brynjar Halldórsson tekið það saman að þetta sé aðeins í annað skiptið, frá því núverandi fyrirkomulag var tekið upp (riðlaskipting og úrslitaleikur), sem KR og Valur spila til úrslita á Reykjavíkurmótinu. KR vann 1-0 sigur á Val í úrslitaleiknum 1991. Félögin hafa leikið 91 leik á Reykjavíkurmótinu. KR hefur sigrað í 38 leikjum, Valur í 32 en 21 lauk með jafntefli. Markatalan er 146-133 KR í hag. KR vann 5-1 þegar liðin mættust fyrist, árið 1915, en þau skildu jöfn, 1-1, í fyrra.
Íslenski boltinn Mest lesið Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport Frábært mark Trents, fyrsta mark Chiesa og nýtt Liverpool met hjá sextán ára strák Enski boltinn Þórir hefur ekki áhuga Handbolti Freyr sagði já við Brann Fótbolti „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Handbolti Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport Þarf að vera klár á hverjum degi: „Stíg inn í mjög hart umhverfi“ Fótbolti David Moyes aftur orðinn knattspyrnustjóri Everton Enski boltinn Stjóri Liverpool neitaði að tjá sig um Kvaradona orðróminn Enski boltinn Fleiri fréttir Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Sjá meira