Körfubolti

Boston Celtics sendir Perkins til Oklahoma City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kendrick Perkins.
Kendrick Perkins. Mynd/AP
NBA-liðin Boston Celtics og Oklahoma City Thunder skiptu á leikmönnum í kvöld rétt áður en félagsskiptaglugginn lokaði í NBA-deildinni.

Boston Celtics sendir miðherjann Kendrick Perkins og bakvörðinn Nate Robinson til Oklahoma City Thunder fyrir framherjann Jeff Green og serbneska miðherjann Nenad Krstic.

Oklahoma City fékk einnig miðherjann Nazr Mohammed frá Charlotte Bobcats fyrir

D.J. White og Mo Peterson og það er ljóst að liðið hefur tekið þá ákvörðun að styrkja sig inn í teig áður en kemur að úrslitakeppninni.

Boston Celtics losaði sig einnig við þá Semih Erden og Luke Harangody til Cleveland Cavaliers fyrir valrétt í annarri umferð nýliðavalsins.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×