Körfubolti

Unnur Tara: Betra liðið tók þetta að lokum

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Unnur og Margrét Kara Sturludóttir með bikarinn eftir leik. Mynd/Vilhelm
Unnur og Margrét Kara Sturludóttir með bikarinn eftir leik. Mynd/Vilhelm

„Þetta er ólýsanlegt. Ég er mjög ánægð hvernig við komum til baka í þriðja leikhluta og æðislegt að klára þetta dæmi hér í kvöld," sagði Unnur Tara Jónsdóttir, leikmaður KR, eftir að KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna.

Liðið lagði Hamar í oddaleik sem fram fór í DHL-höllinni. Lokatölur voru 84-79. Unnur Tara átti góðan leik og var stigahæst í liði meistaranna með 27 stig 7 fráköst. Unni líður vel í Vesturbænum og segir stemninguna einstaka.

„Ég er mjög ánægð með liðið og vetur er búinn að vera frábær. Ég hef aldrei verið í liði sem er með svona flottan hóp og góða liðsheild og stemningin frábær hjá KR," sagði Unnur Tara brosandi eftir sigurinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×