Lífið

Fékk menningarsjokk í Kína

Fegurðardrottningin Sylvía Briem Friðjóns er nýkomin heim frá Kína þar sem hún tók þátt í keppni sem ber yfirskriftina Miss Tourism. 87 stúlkur frá öllu heimsálfum tóku þátt en það var ungfrú Suður Kórea sem bar sigur úr bítum.

„Við ferðuðumst meirihlutann af tímanum. Við skiptum til að mynda um hótel átta eða níu sinnum á þessum þremur vikum sem við vorum í Kína," sagði Sylvía spurð út í ævintýrið.

„Miss Tourism er fegurðarsamkeppni svipuð og ungfrú Ísland hérna heima þar sem við komum fram á sýiningum og þess háttar. Áhersla var lögð á framkomu, hegðun og útlit," sagði Sylvía.



„Mér gekk rosalega vel en það voru Asíu löndin sem enduðu í toppsætunum. Ég var ekki eins stressuð og þegar ég tók þátt hérna heima í ungfrú Reykjavík og ungfrú Ísland því þarna þekkti ég engan."

„Það sem stendur uppúr er hvað ég eignaðist margar góðar vinkonur og fékk að sjá æðislega staði. Ég fékk menningarsjokk því ég hélt að Kína væri svo háþróað land. Fólk er illa upplýst. Sumir höfðu aldrei séð stelpur með blá augu en mikið er ég þakklát fyrir að búa á Íslandi þrátt fyrir ástandið eins og það er í dag. Ég er stoltur Íslendingur. Það kom mér ánægjulega á óvart hvað fólk vissi mikið um Ísland."

Mælir þú með því að stúlkur fari erlendis í keppnir eins og Miss Tourism? „Já ég mæli eindregið með því að þær fari erlendis til að upplifa eitthvað nýtt, kynnast fólki og sjá heiminn," svarar Sylvía.

Sylvía starfar í dag hjá Ölgerðinni þar sem hún selur L'Oreal, Maybelline og Oroblu.

Meðfylgjandi má sjá myndir sem Sylvía tók í Kína.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.