Lífið

Naomi leikur Marilyn í myndinni Blonde

Naomi Watts leikur þokkagyðjuna Marilyn Monroe í nýrri kvikmynd sem nefnist Blonde.
Naomi Watts leikur þokkagyðjuna Marilyn Monroe í nýrri kvikmynd sem nefnist Blonde.

Leikkonan Naomi Watts ætlar að leika þokkagyðjuna Marilyn Monroe í nýrri kvikmynd um leikkonuna. Myndin nefnist Blonde, eða Ljóska, og hefjast tökur í janúar.

Þetta var tilkynnt á Cannes-kvikmyndahátíðinni sem er haldin þessa dagana í Frakklandi. Myndin verður byggð á samnefndri bók eftir bandaríska rithöfundinn Joyce Carol Oates.

Hin 41 árs Watts þykir hafa rétta útlitið til að leika goðsögnina Marilyn enda báðar ljóshærðar og snoppufríðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.