Erlent

Mótmæli leyfð gegn Japönum

Reiðir mótmælendur
Leyft að fá útrás í Kína.
nordicphotos/AFP
Reiðir mótmælendur Leyft að fá útrás í Kína. nordicphotos/AFP

Kínversk stjórnvöld gáfu góðfúslega leyfi sitt til fjöldamótmæla í nokkrum borgum, en þeim var beint gegn Japan. Sums staðar fóru mótmælin úr böndunum og til átaka kom við lögreglu.

Mikil reiði hefur gripið um sig meðal almennings í Kína vegna deilna um yfirráðarétt nokkurra eyja, sem Kínverjar kalla Diaoyu-eyjar en Japanar Senkaku-eyjar. Þegar reiðin tók að beinast gegn kínverskum stjórnvöldum virðast þau hafa talið skynsamlegra að leyfa mótmælin.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×