Körfubolti

Tíu milljónir horfðu á ákvörðun LeBron James

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Þessar voru ekki sáttar með LeBron.
Þessar voru ekki sáttar með LeBron. AFP
Tæplega tíu milljónir manna horfðu á "The Decision" - "Ákvörðunina" þar sem LeBron James tilkynnti að hann hefði ákveðið að ganga í raðir Miami Heat. Það er þriðja mesta áhorf á sjónvarpsþátt á þessu ári.

Þetta kemur fram á heimasíðu NBA deildarinnar en aðeins fleiri horfðu á NFL Pro Bowl, stjórnuleik NFL deildarinnar og ICarly þáttinn.

Þó horfðu 28 milljónir á Los Angeles Lakers verða NBA meistara í lokaleiknum gegn Boston.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×