Fótbolti

Arnór á bekknum hjá Esbjerg

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Smárason.
Arnór Smárason.

Arnór Smárason er á góðri leið með að ná sér góðum af meiðslum sínum en hann var á bekknum þegar lið hans, Esbjerg, gerði 1-1 jafntefli við Álaborg í dag.

Arnór hefur verið frá vegna meiðsla undanfarnar vikur og missti af leikjum Íslands gegn Skotlandi í undankeppni EM U-21 landsliða.

Esbjerg er í níunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með fimmtán stig eftir jafn marga leiki. FC Kaupmannahöfn er á toppnum með 38 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×