Fótbolti

Real Madrid marði sigur á Sociedad

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Real fagna marki DiMaria í kvöld.
Leikmenn Real fagna marki DiMaria í kvöld.

Real Madrid sýndi ekki á sér sparihliðarnar í kvöld er það sótti Real Sociedad heima. Þrátt fyrir það náði liðið að hala inn sigri sem var þó afar tæpur.

Angel DiMaria kom Madrid yfir á 51. mínútu með stórglæsilegu marki. Skot úr teignum sem hafnaði efst í markhorninu fjær.

Sæla Madringa var skammvinn því Raul Tamudo jafnaði metin fyrir heimamenn á 62. mínútu. Skoraði þá af stuttu færi eftir aukaspyrnu.

Ronaldo var sem fyrr duglegur að skjóta á markið. Það bar árangur á 74. mínútu þegar hann skoraði úr aukaspyrnu. Boltinn hafði reyndar viðkomu í öðrum manni áður en hann fór í netið.

2-1 fyrir Real og það reyndust vera lokatölur leiksins.

Úrslit annarra leikja í dag:

Espanyol-Almeria  1-0

Mallorca-Osasuna  2-0

Sporting Gijon-Athletic Bilbao  2-2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×