Körfubolti

NBA: Lakers lagði Spurs án Kobe

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jackson var ánægður með strákana sína í nótt.
Jackson var ánægður með strákana sína í nótt.

Gregg Popovich, þjálfari Spurs, sagði fyrir leikinn gegn Lakers í nótt að sigur myndi ekki hafa mikla þýðingu þar sem Lakers-liðið væri vængbrotið. Að sama skapi sagði hann að það yrði hrikalegt að tapa leiknum.

Það er nákvæmlega það sem gerðist. Lakers vann leikinn án þeirra Kobe Bryant og Andrew Bynum. Fimm leikmenn Lakers voru með tvöfalda tvennu.

Lakers er nú búið að vinna fjóra leiki í röð gegn Spurs á heimavelli sínum.

Úrslit næturinnar:

Orlando-New Orleans  123-117

Golden State-Dallas  117-127

LA Lakers-San Antonio  101-89

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×