Fótbolti

United að undirbúa tilboð í Rafael Van der Vaart

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Rafael Van der Vaart, leikmaður Real Madrid.
Rafael Van der Vaart, leikmaður Real Madrid.
Hollendingurinn Rafael Van der Vaart, leikmaður Real Madrid, er orðaður við Manchester United en hann hefur fundið sinn rétta takt í vetur eftir erfiðan tíma á Spáni. Van der Vaart var settur á sölulista síðasta sumar en ekkert varð úr sölu á leikmanninum þá. Nú er talið að United séu reiðubúnir að borga 23 milljónir punda fyrir leikmanninn en sögur segja að hann sé í miklum metum hjá stjóra þeirra Sir Alex Ferguson. Fleiri lið í ensku úrvalsdeildinni hafa verið nefnd til sögunnar og vilja leikmanninn í sínar raðir en Chelsea, Liverpool, Man City og Arsenal hafa öll sýnt Van der Vaart áhuga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×