Fótbolti

Guardiola er besti þjálfari heims

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Xavi og Guardiola.
Xavi og Guardiola.

Miðjumaðurinn Xavi hjá Barcelona segir að þjálfarinn sinn, Pep Guardiola, sé besti þjálfari heims í dag.

"Hann er sá besti í heimi. Hann leggur mjög hart að sér og er algjör fullkomnunarsinni. Það fer ekkert fram hjá honum, hann punktar allt hjá sér og gerir allt sem gera þarf. Ef það væri hægt að kjósa besta þjálfara heims þá myndi ég kjósa hann," sagði Xavi.

Sjálfur kemur miðjumaðurinn til greina sem besti knattspyrnumaður heims. Hann segir þó að félagi sinn hjá Barcelona, Lionel Messi, eigi að fá þau verðlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×