Gagnrýni

Stjarna á mann

Garðar Örn ÚIfarsson skrifar
Mynddiskurinn Með öngulinn í rassinum. Gunnar Helgason. Ásmundur Helgason.
Mynddiskurinn Með öngulinn í rassinum. Gunnar Helgason. Ásmundur Helgason.
Mynddiskar

Með öngulinn í rassinum

Ásmundur og Gunnar Helgasynir

Tvíburabræðurnir Ásmundur og Gunnar Helgasynir eru skemmtilegir og áhugasamir veiðimenn. Það skín í gegn á diskinum sem geymir þáttaröðina með Öngulinn í rassinum sem sýnd var á Skjá einum í fyrravor. Áður hefur Gunnar gert veiðidiskana Af hverju tekur laxinn og Svona tekur laxinn. Ragnheiður Thorsteinsson framleiðir alla diskana.

Reynt er að gera margar skemmtilegar hugmyndir að veruleika í Með öngulinn í rassinum. Fastir liðir í hverjum hinna sex þátta eru til dæmis flugukastkeppni og spjall við þriggja manna öldungaráð.

Meginþráðurinn í þáttunum er hins vegar keppni þeirra bræðra í að veiða flesta laxa. Fóru þeir nokkra túra í Laxá í Aðaldal, Vatnsdalsá og Langá sumarið 2009. Við blasir að veiðiefnið sem náðist í hús hefur ekki verið eins mikið að gæðum og að var stefnt í upphafi til að halda uppi sex þátta seríu.

Fyrir veiðimenn virka þættirnir því útvatnaðir. Mikið af uppfyllingarefni megnar ekki að breiða yfir það þótt afþreying inn á milli sé stundum ágæt (hverjum datt eiginlega í hug að stangveiðimenn sérstaklega hafi áhuga á því að heyra ofan í spákerlingu heima í stofu?).

Niðurstaða: Með öngulinn í rassinum stendur nokkuð að baki fyrri veiðimyndum Gunnars og Ragnheiðar þótt inn á milli leynist skemmtilegar tökur sem vísast eiga eftir að ylja víða í vetur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×