Innlent

Skáru göt á sextíu heyrúllur

heyrúllur
Tjónið eftir skemmdarvargana er talið í hundruðum þúsunda.
heyrúllur Tjónið eftir skemmdarvargana er talið í hundruðum þúsunda.

Skorið var á 62 heyrúllur við bæinn Vatnsleysu í Biskupstungum í síðustu viku. Lögreglan á Selfossi hefur málið til rannsóknar en skemmdarverkin voru unnin fimmtudagskvöldið 19. ágúst eða aðfaranótt föstudagsins.

Tjónið nemur hundruðum þúsunda því umtalsverður kostnaður felst í því að pakka rúllunum upp. Ekki er ljóst hvort heyið skemmdist við það að súrefni komst að því.

Lögreglan óskar eftir upplýsingum um málið í síma 480 1010.

- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×