Fótbolti

Gerrard og Maicon fara ekki til Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Real Madrid hefur gefist upp á því að reyna að kaupa brasilíska bakvörðinn Maicon frá Evrópumeisturum Inter. Það staðfestir sérstakur ráðgjafi félagsins í leikmannamálum, Ernesto Bronzetti.

"Mourinho ætlar að hafa Sergio Ramos í bakverðinum og leitar nú að miðverði eða miðjumanni í ætt við Steven Gerrard," sagði Bronzetti og bætir við að Real hafi aldrei gert tilboð í Maicon. Inter hafi aftur á móti viljað fá 35 milljónir evra.

"Kaká verður áfram hjá Real og forsetinn samþykkir ekki að við kaupum Gerrard því hann er orðinn þrítugur. Þess utan bað Liverpool um 70 milljónir evra fyrir hann."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×