Innlent

Lögreglumenn fylgdu skýrslunni í Alþingishúsið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Starfsmenn Prentsmiðjunnar Odda trilla skýrslunni inn í Alþingishúsið undir vökulum augum óeinkennisklædds lögreglumanns. Mynd/ GVA.
Starfsmenn Prentsmiðjunnar Odda trilla skýrslunni inn í Alþingishúsið undir vökulum augum óeinkennisklædds lögreglumanns. Mynd/ GVA.
Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis var flutt úr Prentsmiðjunni Odda í Alþingishúsið eldsnemma í morgun. Hún var flutt í fylgd óeinkennisklæddra lögreglumanna niður í Alþingishús þar sem starfsmenn þingsins tóku á móti henni. Henni verður dreift inn á herbergi allra þingmanna strax eftir að forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, hefur tekið við henni klukkan tíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×