Körfubolti

Miller meiddist illa við að reyna að dekka LeBron James

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mike Miller.
Mike Miller. Mynd/AP
Mike Miller mun ekki getað byrjað að spila með Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta fyrr en í janúar og ástæðan er sú að hann meiddist illa við það að reyna að dekka LeBron James á æfingu.

Það er allt annað en auðvelt að ráða við LeBron James og Miller fékk að kynnast því í síðustu viku. Þumalputti hans festist í treyju LeBron og brotnaði þegar James þaut af stað af sínum súperman-krafti.

„Ég heyrði smell og ég vissi strax að þetta var alvarlegt," sagði Mike Miller sem átti að spila mikilvægt hlutverk við hlið ofurþríeykisins í Miami-liðinu í vetur.

„Læknarnir heimtuðu að ég færi í aðgerð og ég mun ekki sjá eftir því í framtíðinni þó að ég hafi bara viljað fá umbúðir á hendina og halda áfram," sagði Mike Miller.

„Þetta gerist varla meira svekkjandi því ég var búinn að bíða allan minn feril eftir að fá tækifæri til að spila með svona liði. Þetta byrjar illa en ég veit að þetta er langt tímabil," sagði Miller.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×