Körfubolti

Brot Dwight Howard var „svívirðilegt“

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
"Hvar er ég?," er líklegt að Howard hafi sagt við þetta tilefni.
"Hvar er ég?," er líklegt að Howard hafi sagt við þetta tilefni. Mynd/AP

Dwight Howard sveiflaði olnboga sínum heldur hressilega eftir að hann reif til sín frákast í fjórða leik Orlando Magic og Boston Celtic í vikunni.

Hann hæfði Kevin Garnett í andlitið og járnmaðurinn lagðist í gólfið, óvígur eftir atvikið. NBA-deildin tók brotið fyrir og hefur dæmt það upp á nýtt.

Áður var það ekki talið mjög alvarlegt en hefur nú verið uppfært í „svívirðilegt brot," samkvæmt skilgreiningum deildarinnar.

Þetta er annað „svívirðilega" brotið hjá Howard í úrslitakeppninni. Fái hann tvö slík til viðbótar dæmd á sig fer hann í eins leiks bann.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×