Körfubolti

Magic ekki lengur einn af eigendum Lakers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

LA Lakers-goðsögnin Magic Johnson er ekki lengur einn af eigendum félagsins eftir að hann seldi hlut sinn sem hann hefur átt síðan 1994.

Magic átti lítinn hlut í félaginu sem hann seldi til dr. Patrick Soon-Shiong. Hann er talinn hafa grætt ágætlega á sölunni.

Ástæðan fyrir sölunni er sögð vera sú að Magic ætli sér að kaupa stóran hlut í öðru NBA-félagi. Á meðan hann leitar að rétta tækifærinu mun hann áfram vera stjórnendum Lakers innan handar.

Hann áréttaði í yfirlýsingu að þó svo hann hefði selt hlutinn væri hann enn mikill Lakers-maður og það myndi aldrei breytast.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×