Körfubolti

NBA: Lakers sjóðheitt án Kobe

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pau Gasol.
Pau Gasol.

LA Lakers virðist kunna ágætlega að spila án Kobe Bryant því liðið vann í nótt sinn þriðja leik í röð án stjörnunnar sinnar. Að þessu sinni gegn heitasta liði Vesturdeildarinnar, Utah Jazz.

Jazz var búið að vinna 9 leiki í röð og 14 af síðustu 15 áður en það mætti Lakers í nótt sem var án Kobe og Andrew Bynum.

Frábær varnarleikur lagði grunninn að sigrinum. Lamar Odom var magnaður og skoraði 25 stig og tók 11 fráköst. Pau Gasol var ekki síðri með 22 stig og 19 fráköst.

Úrslit næturinnar:

Atlanta-Miami  76-94

Toronto-Philadelphia  104-93

Detroit-Sacramento  97-103

NJ Nets-Milwaukee  77-97

Chicago-Orlando  87-107

Minnesota-Charlotte  92-93

New Orleans-Boston  93-85

Phoenix-Portland  101-108

Utah-LA Lakers  81-96

Golden State-LA Clippers  132-102

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×