Fótbolti

Snýr Rooney aftur á miðvikudag?

Elvar Geir Magnússon skrifar
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Wayne Rooney gæti óvænt snúið aftur á fótboltavöllinn á miðvikudag þegar Manchester United mætir FC Bayern í síðari viðureign liðanna í Meistaradeildinni.

Læknalið Manchester United sagði í gær að það væru þó meiri líkur en minni á því að Rooney missi af leiknum. Sir Alex Ferguson gaf það út fyrir helgi að Rooney yrði frá í tvær til þrjár vikur.

Hans er ansi sárt saknað hjá United sem tapaði tveimur mjög mikilvægum á einni viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×