Körfubolti

Fölsk jólakveðja frá LA Lakers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Leikmenn NBA-meistara Los Angeles Lakers eru komnir í jólaskap og þeir hafa nú sent frá sér jólakveðju á netinu þar sem þeir syngja hið fræga jólalag "Jingle Bells."

Á meðal söngvara eru Pau Gasol og Ron Artest. Má segja að þeir hafi sannað í þessu myndbandi að þeir eru á réttri hillu í lífinu.

Kobe Bryant tekur ekki lagið en sendir kveðju í lok myndbandsins sem er hægt að sjá hér að ofan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×